Fræðsluefni

Reddit

Reddit er umræðuvettvangur þar sem notendur eiga í samskiptum í alls kyns hópum (e. Subreddits). Hóparnir snúa að og fjalla um ákveðin efni svo sem heilsu, tölvuleikjum, íþróttum, ráðgjöf, stjórnmálum, húmor og fleira. Hóparnir eru yfirleitt opnir og getur hver sem er skoðað efnið þar inni. Það eru svo notendurnir sjálfir (moderators) sem stýra relgum hópana og gæta þær því verið alla vegana og mismunandi eftir hópum

  • Miðill þar sem eru stórir umræðuhópar (e. subreddits) með mismunandi reglur sem notendur setja sjálfir
  • Börn og ungmenni leita oft í miðilinn þess að vera í hópum sem tengjast áhugamálum sínum eða til að leita ráða um ýmislegt
  • Einstaklingsspjöll eru í boði og oft mikil nafnleynd á Reddit
  • Dæmi eru um hópa þar sem efni sem er ekki við hæfi barna er dreift

Hlutfall notenda á aldrinum 10-13 ára á Íslandi: 6%

Hlutfall notenda á aldrinum 14-16 ára á Íslandi: 10%

Aldurstakmark: 13++

3 staðreyndir um Reddit

Margir og mismunandi hópar

Á Reddit eru þúsundir hópa eru má nánast finna hóp um hvað sem er. Margir hópar eru fræðandi og geta jafnvel veitt ráðgjöf. Aðrir snúa af áhugamálum og notendur geta komið saman og rætt um þau við aðra sem hafa áhuga á því sama. Möguleikarnir eru nánast endalausir. Reddit er gríðarlega fjölbreyttur umræðuvettvangur þar sem efni af öllum toga er að finna.

Nafnleynd er algeng á miðlinum

Það tíðkast að notendur á Reddit kjósi nafnleynd. Það getur líkurnar á harðri orðræðu, vafasamri ráðgjöf og fölskum upplýsingum. Þá eru samskipti á miðlinum oft við nafnlausa og þ.a.l. ókunnuga aðganga.

Töluvert af 18+ hópum

Á Reddit má finna fjöldan allan af hópum sem eru bannaðir fyrir notendur sem eru yngri en 18 ára. Slíkir hópar geta innihaldið óviðeigandi og skaðlegt efni fyrir börn. Þá er tiltölulega auðvelt að fyrir notendur að ljúga til um aldur og komast inn í slíka hópa.

Vilt þú fá nýjustu fréttir og fræðsluefni?

Skráðu þig á póstlistann okkar