Fræðsluefni

X

X (áður Twitter) er samfélagsmiðill sem byggir á stuttum textafærslum, myndum og myndböndum sem dreifast hratt í opnum straumi. Miðillinn er mikið notaður til umræðu um fréttir, stjórnmál og samfélagsmál. Miðillinn hefur breyst töluvert á undanförnum árum og hefur verið lögð áhersla á málfrelsi á miðlinum. Það hefur aukið magnið af fölsku og óviðeigandi efni.

  • X er samfélagsmiðill sem byggist upp af stuttum færslum, myndum og myndböndum
  • Margir vilja meina að aukning hafi orðið á hatursfullu- kynferðislegu- og ofbeldisfullu efni á X á undanförnum árum
  • Þá hefur svokölluðum varnöglum sem á að vernda notendur frá skaðlegu efni fækkað á miðlinum að undanförnu í nafni aukins málfrelsis
  • Fjölmörg dæmi eru um að notendur hafi rekist á afar óviðeigandi efni á X fyrir algjöra tilviljun – slíkt efni getur farið í dreifingu um miðilinn mjög hratt
  • Hægt er að spjalla saman á X í einka- eða hópskilaboðum

*Vegna opins eðlis X, lítils eftirlits og mikils ágreinings sem á sér stað inni á miðilinum er hann almennt ekki talinn hentugur fyrir börn eða ungmenni.

Hlutfall notenda á aldrinum 10-13 ára á Íslandi: 2%

Hlutfall notenda á aldrinum 14-16 ára á Íslandi: 12%

Aldurstakmark: 13++

3 staðreyndir um X

Umræður og efni oftar en ekki við hæfi barna

Þrátt fyrir að ið fyrir X sé 13+ geta umræður sem fara fram á miðlinum verið mjög ósvífnar og jafnvel skaðlegar. Þær geta t.a.m. innihaldið hatursorðræðu, ofbeldisfullt og kynferðislegt efni sem er ekki við hæfi barna og ungmenna.

Takmarkað eftirlit og veikar síur

Eftir breytingar á miðlinum hefur eftirlit á honum snarminnkað. Villandi, öfgafullt og jafnvel skaðlegt efni getur því birst í straumi notenda nánast fyrirvaralaust.

Algóritminn ýtir undir skautun og öfgafullar skoðanir

Efni sem vekur sterk tilfinningaleg viðbrögð eins og reiði, sorg eða ótta fær gjarnan meiri sýnileika en annað efni á miðlinum sem getur stuðlað að einhliða og ýktri umræðu.

Vilt þú fá nýjustu fréttir og fræðsluefni?

Skráðu þig á póstlistann okkar