Fræðsluefni

Telegram

Telegram er samfélagsmiðill og samskiptaforrit. Þar er hægt að eiga samskipti með einkaskilaboðum, í hópum og á opnum rásum (e. channels). Telegram leggur áherslu á hröð samskipti, stóra hópa og einfalda deilingu efnis. Minna eftirlit er með samskiptum inni á Telegram en á öðrum samskiptaforritum.

  • Samskiptamiðill þar sem einstaklingsspjöll og hópaspjöll í boði
  • Telegram er svipaður og Whatsapp nema stærri hópar og færri reglur
  • Rásir (e. channels) geta innihaldið mjög marga notendur – dæmi eru um rásir er sem innihalda óviðeigandi efni
    Erfitt að tilkynna – dæmi eru um að miðillinn sé notaður til að deila efni sem er bannað eða takmarkað á öðrum miðlum
  • Hlutfall notenda á aldrinum 11 – 13 ára á Íslandi

*Samkvæmt skilmálum Telegram er forritið ekki ætlað börnum yngri en 16 ára. Í App Store segir að ið sé 17+ en notendur innan ESB og í Bretlandi þurfa hins vegar að hafa náð 18 ára aldri.

Hlutfall notenda á aldrinum 10-13 ára á Íslandi: 3%

Hlutfall notenda á aldrinum 14-16 ára á Íslandi: 6%

Aldurstakmark: 16+

3 staðreyndir um Telegram

Mjög stórir hópar og opnar rásir

Á Telegram geta hópar og opnar rásir samanstaðið af tugþúsundum og jafnvel hundruð þúsunda notenda. Börn og ungmenni geta því auldveldlega fylgst með eða orðið hluti af samskiptum þar sem eftirlit er lítið sem ekkert.

Takmarkað eftirlit

Telegram er þekkt fyrir að bregðast seint og illa við tilkynningum um skaðlegt efni á forritinu. Þetta þýðir að upplýsingaóreiða, hatursorðræða, ofbeldisfullt efni og klám fær gjarnan að standa óáreitt þrátt fyrir að vera tilkynnt.

Notendur geta verið nafnlausir og samskipti dulkóðuð

Notendur Telegram geta valið að vera nafnlausir og samskipti í forritinu eru dulkóðuð. Dulkóðun þýðir að einungis sendandi og mótttakandi geta lesið skilaboðin sem þeir senda sín á milli.

Vilt þú fá nýjustu fréttir og fræðsluefni?

Skráðu þig á póstlistann okkar