Minecraft er vinsæll tölvuleikur sem snýst um að búa til alls konar hluti úr efnivið sem leikmenn geta fundið í umhverfi sínu. Leikurinn býður upp á tvennskonar útgáfur (e. gamemodes). Í Creative Mode geta leikmenn byggt hluti án allra takmarkana en í Survival Mode reyna leikmenn að sjá fyrir sjálfum sér og lifa af í veröldinni, með því að safna efni og búa til hluti og verja sig frá ýmsum hættum sem kunna að leynast í veröldinni. Minecraft er stundum líkt við Lego á netinu en nánast allt í leiknum er gert úr kubbum.
Aldurstakmark: 7+
Vinsælt er að spila Minecraft með öðrum og vinna saman að því að byggja upp sitt umhverfi og lifa af í veröldinni. Vinir spila því oft saman og nýta leikinn einnig til samveru og samskipta. Það er því mikilvægt að muna að hægt er að eiga samskipti í gegnum leikinn.
Minecraft leggur mikið upp úr því að leikurinn sé fræðandi. Framleiðandinn bendir á að leikurinn ýti undir sköpun og ímyndunarafl ásamt því að þjálfa upp samvinnu og úrlausn vandamála. Þá er til sérstök skólaútgáfa af leiknum sem heitir Minecraft: Education Edition.
Minecraft er opinn sandkassaleikur og þar er hægt að byggja og skapa nánast hvað sem er. Þetta þýðir líka að leikurinn klárast í raun ekki og það er sett í hendur leikmannsins að ákveða hvenær skal hætta. Þá ber að nefna að skrímsli og illmenni í Minecraft á borð við uppvakninga og beinagrindur gætu vakið upp óhug hjá einhverjum
Skráðu þig á póstlistann okkar