Spotify er streymisveita þar sem notendur geta streymt tónlist, hlaðvörpum og hljóðbókum í ýmsum tækjum
Streymisveitan hefur tekið miklum breytingum á undanförnum árum og er að vissu leyti orðin mun meira en bara tónlistarstreymisveita
Í dag er hægt að horfa á myndbönd, senda skilaboð og í sumum tilfelllum eru boðið upp á athugasemdakerfi á Spotify
Mikilvægt er að hafa í huga að á Spotify gæti efni leynst sem er ekki við hæfi barna, hvort sem það eru óviðeigandi umræður í hlaðvörpum, athugasemdum eða myndbönd