Fræðsluefni

Fortnite

Fortnite er vinsæll tölvuleikur sem snýst um að útrýma öðrum leikmönnum með hinum ýmsu vopnum og vera síðasti eftirlifandi leikmaðurinn á eyðieyju. Leikurinn er þekktur fyrir litríka grafík, mikinn hraða, stöðugar uppfærslur og samskipti við aðra leikmenn.

  • Ókeypis tölvuleikur þar sem 100 spilarar keppast um að vera sá síðasti eftir á lífi
  • Spilarar safna vopnum og öðrum hjálpartækjum til beita gegn öðrum leikmönnum til þess að lifa lengur af
  • Hægt er að spila einn eða í liði með öðrum og eiga þ.a.l. samskipti við aðra spilara
  • Þrátt fyrir að leikurinn sjálfur er frír er hægt kaupa allskyns aukahluti leiknum á borð við búninga á karakterinn þinn (e.skins)
  • Slíkt kostar V-Bucks, sem er gjaldmiðill leiksins – Hægt er að kaupa V-Bucks fyrir alvöru pening

Aldurstakmark: 13++

3 staðreyndir um Fortnite

Netleikur

Fortnite er netleikur. Leikmenn spila með og gegn öðrum leikmönnum í rauntíma. Þetta gerir það að verkum að yfirleitt er ekki hægt að setja leikinn á pásu eftir að hann er byrjaður. Þá er einnig hægt að eiga í samskiptum við aðra leikmenn í gegnum leikinn, t.d. með raddsamtölum (e. voicechat).

Margar útgáfur í boði

Langvinsælasta útgáfan af Fortnite heitir Battle Royal. Þar lenda 100 leikmenn á eyðieyju og keppast um að útrýma hvorum öðru og lifa sem lengst. Þá eru aðrar útgáfur í boði í Fortnite. Í annari útgáfu vinna leikmenn saman að því að útrýma skrímslum, ein útgáfa býður leikmönnum upp á að skapa sýna eigin heima og leiki. Svo er LEGO-útgáfa, kappakstursútgáfa og margt fleira.

Vörur til sölu fyrir alvöru pening í leiknum

Leikurinn sjálfur er ókeypis en stór hluti af Fortnite eru aukahlutirnir sem hægt er að vinna sér inn og/eða kaupa. Dæmi um þetta er útlit á persónunum (e. skins). Reglulega koma nýjar útlits uppfærslur sem leikmenn geta keypt og eða eignast með virkri spilun.

Vilt þú fá nýjustu fréttir og fræðsluefni?

Skráðu þig á póstlistann okkar