Instagram er samfélagsmiðill í eigu Meta sem byggir fyrst og fremst á myndum og myndböndum. Notendur geta deilt efni í „feed“, „stories“ og „reels“, sent skilaboð og fylgt öðrum notendum.
Samfélagsmiðill sem byggist á myndum og myndböndum
Á miðlinum er hægt að birta færslur (e. posts), sögur (e. stories) og spjallað saman í einka- og hópskilaboðum
Instagram býður einnig upp á Reels, sem eru stutt myndbönd sem spilast hvert af öðru á sama hátt og á TikTok
Virkur algóritmi stýrir hvaða myndbönd eða Reels hver og einn notandi fær á sína „Reels-síðu“ (e. Reelspage) – Reels getur verið ávanabindandi og mikill tímaþjófur
Óraunhæfur samanburður, pressa um vinsældir og vond áhrif á sjálfsímynd barna hefur verið tengd við Instagram í gegnum tíðina – stór hluti efnis á Instagram snýst um útlit, lífstíl og vinsældir
Hlutfall notenda á aldrinum 10-13 ára á Íslandi: 6%
Hlutfall notenda á aldrinum 14-16 ára á Íslandi: 66%
Aldurstakmark: 13++
3 staðreyndir um Instagram
Ýtir undir samanburð og getur haft neikvæð áhrif á sjálfsmynd
Instagram er mjög sjónrænn miðill þar sem áhersla er oft á útlit, lífsstíl og „fullkomnun“. Slíkt efni getur haft áhrif á sjálfsmynd, líðan og líkamsímynd barna og ungmenna, sérstaklega ef notkunin er mikil.
Býður upp á samskipti við ókunnuga
Hægt er að vera í samskiptum við ókunnuga í gegnum skilaboð, athugasemdakerfið og svör við „stories“. Jafnvel þótt um sé að ræða einkareikning geta notendur fengið beiðnir frá ókunnugum um að fá að fylgja þeim eða skilaboð nema ákveðnar öryggisstillingar séu virkjaðar sérstaklega.
Efnið hverfur – en ekki endilega fyrir fullt og allt
Þótt efni sem notendur birta í „stories“ hverfi eftir 24 klst. geta aðrir notendur tekið skjáskot af því áður en það hverfur og deilt því áfram, jafnvel án vitundar og samþykkis þess sem birti það.