Fræðsluefni

Pinterest

  • Á Pinterest skoða notendur myndir og geta safnað og vistað (pinnað) í möppur
  • Margir nota Pinterest til þess að fá hugmyndir til dæmis þegar kemur að tísku, föndri, innanhúsarkítekt o.fl.
  • Pinterest er að ýmsu leyti frábrugðin öðrum samfélagsmiðlum – hafa ber þó í huga að óviðeigandi efni getur birst á miðlinum
  • Hægt er að spjalla saman á Pinterest í einka- eða hópskilaboðum

Hlutfall notenda á aldrinum 10-13 ára á Íslandi: 23%

Hlutfall notenda á aldrinum 14-16 ára á Íslandi: 43%

Aldurstakmark: 13++

3 staðreyndir um Pinterest

Hægt að nota án þess að stofna reikning

Pinterest er ekki ætlað börnum yngri en 13 ára. Þrátt fyrir það geta yngri börn rekist á efni inni á miðlinum án þess að vera með sinn eigin notendaaðgang.

Algóritminn mótar upplifun notenda hratt

Það efni sem notendur leita að eða vista hefur bein áhrif á hvaða efni birtist þeim næst. Þetta getur leitt til einhæfra eða endurtekinna þema, sérstaklega um útlit, líkamsímynd eða lífsstíl.

Auglýsingar og markaðsefni oft dulbúið sem innblástur

Mikið af efni á Pinterest er styrkt (e. sponsored) af fyrirtækjum og eru í raun auglýsingar í dulbúningi, sem gerir börnum og ungmennum erfiðara fyrir að átta sig á því hvenær er verið að markaðssetja vörur og/eða þjónustu til þeirra og hvenær ekki.

Vilt þú fá nýjustu fréttir og fræðsluefni?

Skráðu þig á póstlistann okkar