Snapchat er samfélagsmiðill þar sem notendur geta sent hvorum öðrum skilaboð eða „snöpp“ í formi texta eða hljóðs, myndir og myndbönd sem hverfa yfirleitt eftir að hafa verið skoðuð. Forritið er einkum notað til hversdagslegra samskipta milli vina en notendur þess geta einnig deilt efni í gegnum sögu (e. story). Forritið bíður upp á mismunandi leiðir til að breyta myndefni, svosem með síum (e. filters) eða límmiðum (e. stickers).