Býður upp á samskipti við ókunnuga
Ólíkt Messenger þá er WhatsApp tengt símanúmerum notenda. Þetta þýðir að hver sá sem er með símanúmer notandans getur haft samband við hann í gegnum forritið, nema öryggisstillingar takmarki það.
Skilaboð í WhatsApp eru dulkóðuð
WhatsApp dulkóðar einkaskilaboð sem þýðir að einungis sendandi og mótttakandi geta lesið skilaboðin. Dulkóðunin eykur friðhelgi einkalífs notenda, en takmarkar jafnframt möguleika foreldra til að fylgjast með samskiptum barna sinna í forritinu.
WhatsApp halar sjálfkrafa niður efni sem notandi fær sent
Þetta þýðir að börn geta fengið í hendurnar mikið magn efnis á skömmum tíma sem appið hleður sjálfkrafa niður. Slíkt niðurhal getur kostað farsímagögn (e. Mobile data) og getur efnið verið óviðeigandi eða jafnvel skaðlegt. Hægt er að koma í veg fyrir þetta með því að breyta niðurhals- og geymslustillingum (e.Storage and data settings)