Fræðsluefni

YouTube Kids

Youtube Kids er útgáfa af myndbandsveitunni YouTube sem er sérstaklega hönnuð fyrir börn. Miðillinn býður upp á valið myndefni, einfaldara viðmót og aukið foreldraeftirlit, með það að markmiði að gera upplifun barna öruggari.

  • YouTube Kids er krakkaútgáfan af YouTube sem hönnuð er til að sýna barnvænna efni á miðlinum
  • Miðillinn býður upp á efni af öllum toga s.s. teiknimyndir, barnatónlist, leiki, skapandi og færðsluefni
  • Foreldrar geta haft yfirsýn yfir barnaaðgöngum, stillt tímamörk og lokað á rásir og efni
  • Mikilvægt er að hafa augun opin því óviðeginadi efni getur sloppið í gegnum síur og í sumum tilfellum er getur efnið litið út fyrir að vera barnvænt en skilaboðin ekki

3 staðreyndir um YouTube Kids

Foreldrar stýra aðgangi og efni

Foreldrar geta valið stofnað aðgang sem hæfir aldri barnsins, takmarkað leitarmöguleika, samþykkt ákveðnar rásir eða myndbönd handvirkt og stillt hvers konar efni barnið getur séð.

Algóritminn stýrir því hvaða myndband birtist næst

Þrátt fyrir aukið öryggi mælir YouTube Kids stöðugt með nýjum myndböndum út frá því sem notandinn hefur horft á áður, rétt eins og hið hefðbundna YouTube.

Ekki fullkomlega öruggt

YouTube Kids er hannað til að takmarka aðgengi barna að skaðlegu efni en hönnunin er ekki gallalaust. Efni sem virðist barnvænt á yfirborðinu en er í raun óviðeigandi og jafnvel skaðlegt getur sloppið í gegnum síur veitunnar.

Vilt þú fá nýjustu fréttir og fræðsluefni?

Skráðu þig á póstlistann okkar