Fræðsla

Rauðu flöggin

Í þessu fræðsluerindi kynnast þátttakendur helstu áskorunum og því sem ber að varast í stafrænu umhverfi, svokölluðum „rauðum flöggum“ á netinu. Erindið fjallar meðal annars um netsvik, þar á meðal ástarsvik, netveiðar og fjársvik á netinu, auk falsfrétta og upplýsingaóreiðu sem birtast okkur á stafrænum miðlum. Einnig er fjallað um áhrif og virkni algóritma samfélagsmiðla og gervigreind og þær áskoranir sem henni tengjast í upplýsingamiðlun og dreifingu efnis. Markmið fræðslunnar er að efla upplýsinga- og miðlalæsi þátttakenda og valdefla þá sem örugga, gagnrýna og ábyrga notendur í síbreytilegu stafrænu umhverfi.

Sérstök útgáfa af erindinu er til fyrir eldri borgara 

Panta Rauðu flöggin

xxx

xxx