Ný skýrsla: Stolin athygli

Ný skýrsla um viðhorf til samfélagsmiðla og skjánotkunar hefur verið gefin út. Skýrslan byggir á niðurstöðum könnunar Maskínu fyrir Fjölmiðlanefnd sem lögð var fyrir í nóvember 2025.

Fyrsta samnorræna könnunin á miðlalæsi

Fyrir skemmstu var birt fyrsta samnorræna könnun á miðlalæsi ungmenna og fullorðinna. Er þetta í fyrsta sinn sem hægt er að greina svör úr spurningakönnunum sem lagðar voru fyrir á sama tíma á Íslandi, Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi með það að markmiði að sjá styrkleika og áskoranir meðal vinaþjóða.

Ungt fólk með ákall til fullorðinna

Þegar ungt fólk fær tækifæri til að láta raddir sínar heyrast færumst við nær raunverulegum lausnum. Það sannaðist á málþingi í Grósku 22. október síðastliðinn þegar ungmenni áttu sviðið og skiluðu skýru ákalli til fullorðinna: að axla ábyrgð og vinna með þeim að því að skapa heilbrigðara samfélag, bæði á netinu og utan þess.