Haukur er fjölmiðlafræðingur að mennt og sérfræðingur á sviði upplýsinga- og miðlalæsis hjá Netvís – Netöryggismiðstöðvar Íslands. Haukur vinnur að fræðslu og rannsóknum sem efla þekkingu og vitund almennings um örugga þátttöku í stafrænu samfélagi, með áherslu á upplýsinga- og miðlalæsi, stafrænt öryggi og vernd viðkvæmra hópa.

Haukur hefur reynslu af því að flytja forvarna- og fræðsluerindi fyrir börn, ungmenni, foreldra, fagfólk og eldri borgara.

Hann hefur lokið þjálfun frá Swedish Psychological Defence Agency í borgaralegum vörnum gegn áhrifum upplýsingaóreiðu.