Fræðsluefni
Verkfærakista foreldra
Hér finnur þú samantekt á fræðsluefni um vinsæla samfélagsmiðla, fjölskyldustillingar, tilkynningaleiðir og öryggisstillingar. Þá er hér einnig að finna hlekki inn á annað gagnlegt efni til foreldra um netöryggi barna.
Stöndum saman að vernd barna á netinu.
Fjölskyldustillingar
Samfélagsmiðlar
Hvernig á að tilkynna?
Leiðbeiningar frá lögreglunni
Tölvuleikir
Gervigreind
Leitaðu aðstoðar
Viltu láta fjarlægja nektarmynd af barni undir 18 ára aldri á netinu?
Hér getur þú fengið aðstoð við að fjarlægja myndir sem sýna nekt eða kynferðislegar/klámfengnar myndir og myndbönd á netinu sem teknar voru fyrir 18 ára aldur. Það er von og hér getur þú fengið hjálp Stöndum saman að vernd barna á netinuGagnlegt efni
Heilræði fyrir foreldra
1
Opnun á samtal sem byggir á trausti og virkri hlustun. Börn þurfa öruggan stað til að leita á.
2
Það er eðlilegt að gera mistök og mistök eru til að læra af þeim.
3
Notum skjátæki, miðla og tölvuleiki líka sem samverustund og á uppbyggilegan hátt.
4
Búum okkur til fjölskyldusáttmála þar sem börnin eru með í ferlinu.
5
Komum fram við aðra á netinu eins og við myndum gera úti á götu. Að tjá sig nafnlaust á netinu réttlætir ekki hatursfulla og skaðlega tjáningu.
6
Nýtum öpp, öryggisstillingar og vefsíður til þess að gera umhverfi barna á netinu öruggara t.d. ókeypis lausnir eins og Family Sharing hjá Apple og Google Family Link.
7
Virðum friðhelgi annarra og deilum ekki efni í leyfisleysi sem gæti valdið öðrum skaða.
8
Verum góðar fyrirmyndir og hugum að því sjálf hvernig við notum skjátæki, netið og samfélagsmiðla.
9
Virðum aldurstakmörk í myndefnum, leikjum og á samfélagsmiðlum.
10
Lítum upp og hugum að fjölbreyttum samverustundum.