Hvað segja rannsóknir okkur um stöðuna á miðlanotkun barna á Íslandi í dag? Stolin athygli leitar eiganda síns tekur fyrir atriði í stafrænu umhverfi sem ber að varast auk þess að veita góð ráð varðandi notkun barna á skjátækjum og samfélagsmiðlum. Farið verður yfir hvernig tæki og öpp eru hönnuð til að grípa og stela athygli okkar. Hvað getum við gert til að taka stjórnina í okkar hendur? Viðfangsefni erindisins eru m.a. skjátími barna, aldurstakmörk á samfélagsmiðlum, samskipti á netinu, áreitni og deiling mynda. Farið verður yfir heilræði til foreldra, verkfærakistu með gagnlegu stuðningsefni og gerð fjölskyldusáttmála. Erindið byggir á niðurstöðum rannsóknar Fjölmiðlanefndar í samstarfi við Menntavísindastofnun Háskóla Íslands og Maskínu.
xxx
xxx