Fræðsla

Algóritminn sem elur mig upp

Hvers virði eru upplýsingarnar um okkur og hvað greiðum við fyrir aðgang okkar að samfélagsmiðlum? Í erindinu er áhersla lögð á mikilvægi þess að vera læs á upplýsingar og miðla í nútíma samfélagi. Fjölmiðlalæsi, auglýsingalæsi, gervigreindarlæsi, myndlæsi o.fl. Fjallað er um hvernig algóritmar samfélagsmiðla virka og hvaða áhrif tæknin hefur á daglegt líf og líðan ungs fólks, heilbrigð samskipti á netinu, áreitni frá ókunnugum og ábyrga deilingu mynda. Markmið fræðslunnar er að valdefla nemendur til að nýta tæknina á eigin forsendum á uppbyggilegan og jákvæðan hátt. Erindið byggir á niðurstöðum rannsóknar Fjölmiðlanefndar og Menntavísindastofnunar Háskóla Íslands um börn og netmiðla.

Panta Algóritminn sem elur mig upp

xxx

xxx