Fortnite

Fortnite er vinsæll tölvuleikur sem snýst um að útrýma öðrum leikmönnum með hinum ýmsu vopnum og vera síðasti eftirlifandi leikmaðurinn á eyðieyju. Leikurinn er þekktur fyrir litríka grafík, mikinn hraða, stöðugar uppfærslur og samskipti við aðra leikmenn.
Spotify
YouTube Kids

Youtube Kids er útgáfa af myndbandsveitunni YouTube sem er sérstaklega hönnuð fyrir börn. Miðillinn býður upp á valið myndefni, einfaldara viðmót og aukið foreldraeftirlit, með það að markmiði að gera upplifun barna öruggari.
Omegle
Minecraft

Minecraft er vinsæll tölvuleikur sem snýst um að búa til alls konar hluti úr efnivið sem leikmenn geta fundið í umhverfi sínu. Leikurinn býður upp á tvennskonar útgáfur (e. gamemodes). Í Creative Mode geta leikmenn byggt hluti án allra takmarkana en í Survival Mode reyna leikmenn að sjá fyrir sjálfum sér og lifa af í […]
Kick

Eftirlit á Kick er minna en á sambærilegum miðlum og er því töluvert af óviðeigandi efni þar að finna. Gróft orðalag, fjárhættuspil, áfengi og vímuefni og fleira. Eignarhald Kick er nátengt veðmála- og fjárhættuspilsvettvangnum Stake.com og er því töluvert um streymum af fólki að veðja eða auglýsingar um veðmál á Kick.
YouTube

Youtube er myndbandsveita þar sem notendur geta horft á, deilt og hlaðið upp myndböndum. Efnið spannar allt frá afþreyingu og tónlist yfir í kennsluefni og vídjóblogg (e. vlogs). Youtube er sá samfélagsmiðill sem er hvað mest notaður af börnum og ungmennum á Íslandi.
Telegram

Telegram er samfélagsmiðill og samskiptaforrit. Þar er hægt að eiga samskipti með einkaskilaboðum, í hópum og á opnum rásum (e. channels). Telegram leggur áherslu á hröð samskipti, stóra hópa og einfalda deilingu efnis. Minna eftirlit er með samskiptum inni á Telegram en á öðrum samskiptaforritum.
Life360

WhatsApp er skilaboðaforrit í eigu Meta. Með því er hægt að vera í samskiptum í gegnum einkaskilboð, hópspjöll, radd- og myndsímtöl.