Discord

Discord er samskiptaforrit sem byggir á texta-, radd- og myndspjalli innan svokallaðra þjóna (e. servers). Upphaflega voru það helst tölvuleikjaspilarar sem notuðu Discord en í dag eru notendur mun fjölbreyttari hópur fólks.

Reddit er umræðuvettvangur þar sem notendur eiga í samskiptum í alls kyns hópum (e. Subreddits). Hóparnir snúa að og fjalla um ákveðin efni svo sem heilsu, tölvuleikjum, íþróttum, ráðgjöf, stjórnmálum, húmor og fleira. Hóparnir eru yfirleitt opnir og getur hver sem er skoðað efnið þar inni. Það eru svo notendurnir sjálfir (moderators) sem stýra relgum […]
TikTok

TikTok er samfélagsmiðill þar sem notendur geta búið til og horft á stutt myndbönd (e. reels) um allt á milli himins og jarðar. Forritið byggir á öflugum algóritma sem sérvelur efni fyrir hvern notanda út frá breytum eins og kyni, aldri, áhugasviði o.s.frv.

Instagram er samfélagsmiðill í eigu Meta sem byggir fyrst og fremst á myndum og myndböndum. Notendur geta deilt efni í „feed“, „stories“ og „reels“, sent skilaboð og fylgt öðrum notendum.
Coverstar
X

X (áður Twitter) er samfélagsmiðill sem byggir á stuttum textafærslum, myndum og myndböndum sem dreifast hratt í opnum straumi. Miðillinn er mikið notaður til umræðu um fréttir, stjórnmál og samfélagsmál. Miðillinn hefur breyst töluvert á undanförnum árum og hefur verið lögð áhersla á málfrelsi á miðlinum. Það hefur aukið magnið af fölsku og óviðeigandi efni.