Kick

Eftirlit á Kick er minna en á sambærilegum miðlum og er því töluvert af óviðeigandi efni þar að finna. Gróft orðalag, fjárhættuspil, áfengi og vímuefni og fleira. Eignarhald Kick er nátengt veðmála- og fjárhættuspilsvettvangnum Stake.com og er því töluvert um streymum af fólki að veðja eða auglýsingar um veðmál á Kick.

YouTube

Youtube er myndbandsveita þar sem notendur geta horft á, deilt og hlaðið upp myndböndum. Efnið spannar allt frá afþreyingu og tónlist yfir í kennsluefni og vídjóblogg (e. vlogs). Youtube er sá samfélagsmiðill sem er hvað mest notaður af börnum og ungmennum á Íslandi.

Telegram

Telegram er samfélagsmiðill og samskiptaforrit. Þar er hægt að eiga samskipti með einkaskilaboðum, í hópum og á opnum rásum (e. channels). Telegram leggur áherslu á hröð samskipti, stóra hópa og einfalda deilingu efnis. Minna eftirlit er með samskiptum inni á Telegram en á öðrum samskiptaforritum.

Life360

WhatsApp er skilaboðaforrit í eigu Meta. Með því er hægt að vera í samskiptum í gegnum einkaskilboð, hópspjöll, radd- og myndsímtöl.

YouTube Kids

Youtube Kids er útgáfa af myndbandsveitunni YouTube sem er sérstaklega hönnuð fyrir börn. Miðillinn býður upp á valið myndefni, einfaldara viðmót og aukið foreldraeftirlit, með það að markmiði að gera upplifun barna öruggari.

Snapchat

Snapchat er samfélagsmiðill þar sem notendur geta sent hvorum öðrum skilaboð eða „snöpp“ í formi texta eða hljóðs, myndir og myndbönd sem hverfa yfirleitt eftir að hafa verið skoðuð. Forritið er einkum notað til hversdagslegra samskipta milli vina en notendur þess geta einnig deilt efni í gegnum sögu (e. story). Forritið bíður upp á mismunandi […]

Twitch

Twitch er gagnvirk streymisveita þar sem notendur geta horft á og streymt (e. stream) efni í beinni útsendingu ásamt því að eiga í samskiptum við aðra notendur. Á Twitch er helst verið að streyma tölvuleikjum en einnig skapandi efni á borð við tónlist.